Reykvískir grunnskólanemar stóðu sig einna best í PISA

Skóli og frístund

""

Reykjavíkurborg birtir nú opinberlega niðurstöður PISA- rannsóknar 2012 eftir skólum, eftir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál kvað upp úr um að borginni væri skylt að birta þær. Í PISA 2012 stóðu reykvískir grunnskólanemar sig í heildina einna best, sé árangur eftir landshlutum skoðaður. Skóla- og frístundasvið hefur lagt áherslu á að skólastjórnendur nýti þessi gögn sem og önnur í umbótastarfi skólanna.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur mikla áherslu á að greina þau gögn sem verða til um námsárangur og líðan nemenda í því skyni að starfsfólk grunnskóla hafi góðar upplýsingar til að byggja umbætur og þróun í skólastarfinu á.  Niðurstöður úr PISA hafa verið nýttar í því skyni jafnvel þó að PISA- rannsóknin sé fyrst og fremst hönnuð til þess að gera áreiðanlegan samanburð hjá fjölmennum hópum nemenda, þ.e. samanburð á menntakerfum landa. 

Þátttaka í PISA er valfrjáls og svarhlutfall misjafnt eftir skólum þótt skóla- og frístundasvið hvetji grunnskóla til að taka þátt í rannsókninni.  Óvissan sem felst í notkun PISA niðurstaðna fyrir hvern og einn skóla er því mun meiri en t.d. í samræmdum könnunarprófum sem tekin eru árlega í íslenskum grunnskólum og ber að hafa þá staðreynd í huga við túlkun niðurstaðna.

Reykvískir grunnskólanemendur stóðu sig í heildina einna best sé árangur eftir landshlutum skoðaður í PISA 2012. Auk þess má í greiningu á niðurstöðum einstakra skóla sjá að talsvert margir reykvískir skólar fengu niðurstöðu sem jafnast á við þau lönd sem hæst skoruðu í PISA rannsókninni 2012.

Munur á meðaltali reykvískra skóla er í nokkrum tilvikum tölfræðilega marktækur en þrátt fyrir það sýna niðurstöður PISA 2012 að munur eftir skólum er langsamlega minnstur í íslenska skólakerfinu, að Reykjavík meðtalinni.  Það merkir að jöfnuður milli grunnskóla hér á landi er með allra mesta móti í heiminum.  Einnig má geta þess að niðurstöður um skólabrag og líðan nemenda í grunnskólum voru sérlega jákvæðar, bæði fyrir Reykjavík og landið í heild.

Samstarfshópur skólastjórnenda og starfsfólks skrifstofu skóla- og frístundasviðs leggur nú grunn að umbótaáætlun þar sem vellíðan, árangur, fagmennska og jöfnuður verða áfram lykilþættir í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Sem hluta af þeirri vinnu er starfshópurinn m.a. að skoða með Námsmatsstofnun hvaða þættir það eru í PISA sem reykvískum nemendum gengur vel og illa að leysa. Fyrstu niðurstöður þeirrar athugunar koma verulega á óvart.
 

PISA 2012.

Niðurstöður fyrir Reykjavík.