Reykjavíkurborg semur við Momentum og Gjaldheimtuna um innheimtuþjónustu

Fjármál

""

Momentum greiðsluþjónusta ehf. og Gjaldheimtan ehf. voru lægstbjóðendur í útboði Reykjavíkurborgar um innheimtuþjónustu til næstu 5 ára eða 2018 - 2022 og í dag var skrifað undir samning við félögin um þessa þjónustu.

Momentum og Gjaldheimtan hafa sinnt innheimtum fyrir Reykjavíkurborg frá árinu 2006 og þá hefur Gjaldheimtan sinnt innheimtuþjónustu fyrir Reykjavíkurborg frá stofnun félagsins árið 2003.

Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sem skrifaði undir samninginn fyrir hönd Reykjavíkurborgar, er ánægður með samninginn. „Við höfum verið ánægð með samstarfið við Momentum og Gjaldheimtuna og með útboðinu og þessu tilboði þeirra, sem er grundvöllur samningsins, þá hefur náðst að halda þeim álögum sem leggjast á borgarbúa vegna innheimtu vanskilakrafna sem lægstum, hvort sem um milliinnheimtu er að ræða eða löginnheimtu.“

Davíð B. Gíslason, framkvæmdastjóri Momentum og Gjaldheimtunnar tók í sama streng. „Á þeim árum sem við höfum þjónustað Reykjavíkurborg með innheimtur hefur gífurleg þróun átt sér stað, sérstaklega hafa rafrænar vinnslur og sjálfvirkni aukist mikið. Vegna þeirrar þekkingar sem við búum yfir og reynslu á þessu sviði höfum við náð að hámarka nýtingu okkar tækja, hugbúnað og mannafla og við hlökkum til að halda áfram að vera útvörður Reykjavíkurborgar á þessu sviði áfram.“