Revíur og rómantík

Mannlíf Menning og listir

""

Revíur og rómantík eru í aðalhlutverki í kvöldgöngu Borgarsögusafns Reykjavíkur fimmtudagskvöldið 30. júlí kl. 20. Gönguna leiðir Sveinn Enok Jóhannsson söngvari ásamt Gunnari Ó. Kvaran harmonikuleikara. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Sveinn, sem er klassískur söngvari og hefur tekið þátt í ófáum óperuuppfærslum, mun hefja upp raust sína á sögulegum slóðum og syngja dægurlög sem tengjast húsunum sem skoðuð verða í þessari áhugaverðu kvöldgöngu. Helga Maureen Gylfadóttir, sagnfræðingur, kryddar svo gönguna með sögulegum fróðleik. 

Gangan, sem er hluti af kvöldgöngum menningarstofnana Reykjavíkurborgar, verður farin fimmtudagskvöldið 30. júlí, kl. 20 og er lagt upp frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Gert er ráð fyrir að hún taki um 90 mínútur.