Plöntuskiptadagur

Umhverfi Mannlíf

""

Sunnudaginn 13. júlí verður Plöntuskiptadagur í Laugargarði. Laugargarður er staðsettur í Laugardal við hliðina á Fjölskyldugörðunum, nálægt Langholtsskóla.

Laugargarður er samfélagsrekinn hverfisgarður. Garðurinn tilraun til að búa til stað fyrir borgarbúa til að vinna saman að jákvæðum samfélagslegum breytingum. Við trúum því að með því að efla samvinnu og samskipti meðal borgarbúa munum við saman skapa fallegra mannlíf.

Með plöntuskiptadegi viljum við skapa vettvang fyrir fólk til að skiptast á plöntum, fræjum og fróðleik. Hvernig væri að gefa plöntunni þinni áframhaldandi líf og leyfa öðrum að njóta afleggjara þess en um leið bæta við í plöntusafnið þitt. Dagskráin byrjar klukkan 14 þann 13. júlí og stendur yfir í einn og hálfan tíma.

Kynningarveggspjald fyrir plöntuskiptadaginn

Fylgist með á facebook síðu okkar; facebook.com/laugargardur