Orkuveita Reykjavíkur sýnir sterkan rekstur

Fjármál

""

Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir fyrstu níu mánuðina, tímabilið janúar til september 2014, var staðfestur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 27. nóvember. Reikningurinn sýnir að rekstur Orkuveitu Reykjavíkur styrkist jafnt og þétt.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um rúma 11 milljarða króna en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um sex milljarða. Rekstrarniðurstaðan er því rúmum fimm milljörðum króna betri en gert var ráð fyrir.  Helstu ástæður má rekja til tekjufærslu matsbreytinga fjárfestingaeigna hjá Félagsbústöðum og áhrifa fjármagnsgjalda hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þar vegur þyngst gengismunur og verðmæti innbyggðra afleiða.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um rúma 13 milljarða króna sem er 288 milljónum lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok september samtals 492.5 milljörðum króna  en heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 286.7  milljarðar króna og eigið fé nam 205.7 milljörðum króna en þar af nam hlutdeild meðeigenda 10.8 milljörðum króna.

Fjárhagslegur styrkur A hluta mikill

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 377 milljónir en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 192 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því lakari en gert var ráð fyrir, sem nemur 569 mkr.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 272 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 416 mkr eða 688 mkr lakari en áætlun gerði ráð fyrir. 

Lakari rekstrarniðurstaða skýrist meðal annars af minni tekjum af sölu byggingaréttar en áætlun gerði ráð fyrir og af tapi af sölu fasteigna sem ekki var áætlað fyrir.

Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er engu að síður mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgar¬svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

Breytt uppgjör Orkuveitu Reykjavíkur

Breytt uppgjör Orkuveitu Reykjavíkur. Þann 1. janúar 2014 kom til framkvæmda það ákvæði raforkulaga sem gerir fyrirtækjum á þeim markaði  skylt að skilja á milli sérleyfis- og samkeppnishluta starfseminnar. Um áramótin tók Orka náttúrunnar ohf., dótturfélag sem er alfarið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, til starfa á samkeppnismarkaði raforku en félagið var stofnað til að uppfylla þetta lagaákvæði. Veituþjónustan verður áfram rekin undir merkjum Orkuveitu Reykjavíkur, bæði þau lögbundnu skylduverkefni sveitarfélaga sem vatns- og fráveita eru og sérleyfisþjónusta rafmagns- og hitaveitu. Í móðurfélagi breyttrar samstæðu, Orkuveitu Reykjavíkur, verður sameignleg stoðþjónusta við dótturfélög s.s. fjármál, gæða, umhverfis- og öryggismál auk sameiginlegs þjónustusviðs.

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar janúar –september 2014

Skýrsla Fjármálaskrifstofu við framlagningu níu mánaða uppgjörs Reykjavíkurborgar 2014

City of Reykjavik, INTERIM FINANCIAL STATEMENT,- 1 January - 30 September 2014