Opnað fyrir umsóknir um götu- og torgsölu

Atvinnumál Mannlíf

""

Opnað verður fyrir umsóknir um götu- og torgsölu miðvikudaginn 15. mars kl. 9:00 á „mínum síðum” á vef Reykjavíkurborgar. Ekki er mögulegt að sækja um fyrir þann tíma.

Umsóknir eru afgreiddar í þeirri röð sem þær berast og ræður tímasetning gildra umsókna forgangi við úthlutun. Umsækjendur eru hvattir til að vera tilbúnir með virkan aðgang að Rafrænni Reykjavík og tilskilin gögn. Götu- og torgsala á að auka fjölbreytni og þjónustu í sátt við umhverfið. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur og sölusvæði sem í boði eru.

 Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni Götu- og torgsala