Opnað fyrir umsóknir í Vestnorræna höfuðborgasjóðinn

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Auglýst er eftir umsóknum í Vestnorræna höfuðborgasjóðinn en styrkir úr sjóðnum eru veittir til verkefna sem tengjast samskiptum milli höfuðborga, Íslands, Grænlands og Færeyja og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.

Reykjavíkurborg er aðili að Vestnorræna höfuðborgasjóði Færeyja, Grænlands og Íslands. Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf,  m.a. á sviði menningarmála, milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum. Stjórn sjóðsins mun funda í byrjun maí á þessu ári þar sem ákveðið verður hverjir hljóta styrk  úr sjóðnum.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast samskiptum milli höfuðborganna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.

Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði.

Umsókn skal beint til:
Vestnorræni höfuðborgasjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar
b.t. skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
Ráðhúsi Reykjavíkur
Tjarnargötu 11
101 Reykjavík

Umsóknir berist eigi síðar en þriðjudaginn 18. apríl nk. og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu.
Allar upplýsingar og eyðublöð er að finna á vef Reykjavíkurborgar http://reykjavik.is/vestnorraeni
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4500. Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í júní nk.

Reykjavík, 3. mars 2017
Borgarritari