Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, býður til opins kynningarfundar um fjárfestingu í Reykjavík. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl kl. 8.30 og er hann öllum opinn.
Sagt verður í máli og myndum frá hvernig uppbyggingu miðar í Reykjavík, hvað helst er að gerast og hvaða framkvæmdir eru í deiglunni. Til umfjöllunar verður meðal annars:
- Hótel og ferðaþjónusta í Reykjavík – umfang og uppbygging.
- Þekkingarþorpið í Vatnsmýrinni – samstarf háskólanna, Landspítalans og Reykjavíkurborgar.
- Austurhöfn – þjónusta, verslun og íbúðir.
- Landspítalinn – sjúkrahótel og meðferðarkjarni á dagskrá.
- Framkvæmdahugmyndir fyrir Vesturbugt og Kirkjusand – verslun og þjónusta í þéttri byggð.
- Samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni.
- Faxaflóahafnir – ný atvinnustarfsemi á hafnarsvæðum.
- Iðnaðarsvæði – Gagnaver og græn fjárfesting.
- Almennt framboð á lóðum í Reykjavík. Samstarf um þéttingu byggðar.
Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur miðvikudaginn 15. apríl kl. 8.30 og er hann öllum opinn. Boðið verður upp á létta morgunhressingu frá kl. 8.00 og gert er ráð fyrir að fundurinn verði búinn fyrir kl. 10.00.