Opið fyrir umsóknir um Kjarvalsstofu í París

Mannlíf Menning og listir

""

Kjarvalsstofa er stúdíóíbúð/vinnuaðstaða, sem ætluð er til dvalar fyrir listamenn í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Tímabilið sem um ræðir er frá 3. ágúst 2018 til 27. júlí 2019.

Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts sem rekur stofuna. Á árinu 2018 er gjaldið1.104 evrur fyrir tveggja mánaða dvöl fyrir einstakling. Úthlutað er að lágmarki í tvo mánuði í senn, en vegna fjölda umsókna undanfarin ár hefur dvalartími að jafnaði ekki verið lengri en 2 mánuðir.

Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu, þ.á.m. er ætlast til að þeir nýti stofuna allan úthlutunartíma sinn. Stjórn Cité Internationale des Arts leggur áherslu á að dvalartíminn sé vel nýttur í vinnu umsækjanda að list sinni. Nánari upplýsingar um Kjarvalsstofu.

Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2018 kl. 16.00. Sækja skal um á Rafrænni Reykjavík, rafraen.reykjavik.is.

  Frekari upplýsingar veitir skrifstofa Menningar- og ferðamálasviðs í s. 411-6020 eða á netfanginu menning@reykjavik.is.