Olíumengun í Grófarlæk

Heilbrigðiseftirlit Umhverfi

""

Heilbrigðiseftirlitinu barst tilkynning um talsverða olíumengun í Grófarlæk  í Fossvogsdal en hann rennur í vestari Elliðaá. Leitað er að upptökum lekans.

Olíumengunin í læknum er talsverð. Sjáanleg olíubrák er á vatninu og gróður við lækinn er sums staðar með svartri olíuslikju. Slökkviliðið var kallað út til að sinna mengunarvörnum og hefur það komið fyrir slöngum til að reyna að hefta lekann. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur leitar nú að upptökum olíulekans ásamt Heilbrigðiseftirliti Kópavogs og Hafnarfjarðar en starfsfólk er á staðnum.