Öflugur öskudagur í Breiðholti

Mannlíf Velferð

""

Öskudagur nálgast nú óðfluga, en hann er miðvikudaginn 1. mars. Foreldrafélög í Breiðholti hafa tekið höndum saman um að hvetja til að þess að börn gangi milli húsa milli kl. 17:00 og 19:00 þennan dag, syngi söngva og fái góðgæti að launum - í stað þess að þau fari í verslanamiðstöðvar og fyrirtæki utan hverfis. Þessi háttur hefur verið hafður á í hverfinu undanfarin þrjú ár og þykir hafa tekist afar vel. Heimili sem vilja taka þátt geta merkt útidyrahurð með merkimiða sem fylgir hér með fréttinni, sett kerti fyrir utan húsið eða vafið poka um hurðarhún.

Hér má sjá facebook-viðburð fyrir Öskudaginn í Breiðholti - allar upplýsingar fyrir þá sem vilja taka þátt!

Hér má nálgast miða til að prenta út og setja á hurð auk leiðbeininga frá foreldrafélögum (PDF og Word).