Notendum fjárhagsaðstoðar fækkar umtalsvert

Velferð

""
Umtalsverður árangur hefur náðst við að fækka  notendum fjárhagsaðstoðar  á undanförnum misserum.
Notendum fjárhagsaðstoðar til framfærslu fækkaði á fyrstu þremur mánuðum þessa árs um tæp 24% samanborið við árið í fyrra, eða úr 1924 í 1469 manns. Heildarútgjöld Reykjavíkurborgar til fjárhagsaðstoðar lækkuðu um ríflega 20% vegna fækkunarinnar.
 
Á síðustu árum hefur verið gripið til fjölbreytilegra ráðstafana til að auka þjónustu við þá sem fá fjárhagsaðstoð til framfærslu, einkum þá sem eru atvinnulausir eða sjúklingar. Ráðstafanir þessar eru ýmist alfarið á hendi velferðarsviðs eða í samstarfi við aðrar stofnanir.  Má þar nefna að virkniráðgjafar voru ráðnir í upphafi árs 2010 til starfa á þjónustumiðstöðvum, Atvinnutorg opnaði í febrúar 2012, Stígur, þjónusta við atvinnuleitendur, var stofnaður í mars 2014, atvinnumáladeild var stofnuð hjá Reykjavíkurborg árið 2012, færniteymi með þjónustu fyrir óvinnufæra og matsteymið Velvirk hófu starfsemi árið 2014. Þá hefur verið lögð sérstök áhersla á þjónustu við ungt fólk og þá sem ljúka bótarétti sínum hjá Vinnumálastofnun.
 
Aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að fækka notendum fjárhagsaðstoðar byggir á virku samráði og þátttöku notendanna. Áhersla er á valdeflingu með það að leiðarljósi að einstaklingurinn taki ábyrgð á eigin lífi og geti séð sér og sínum farborða án aðkomu sveitarfélagsins.
 
Árangurinn sem náðst hefur á undanförnum árum og ekki síst á þessu ári og í fyrrai má rekja til markvissrar stefnumótunar og ekki síður öflugrar vinnu starfsfólks Reykjavíkurborgar  á þjónustumiðstöðvunum og víðar.  Borgarstjórn mun fjalla sérstaklega um þennan árangur á fundi sínum þriðjudaginn  7. júní og hægt er að fylgjast með borgarstjórn í beinni útsendingu.