Nikulás Úlfar Másson ráðinn í embætti byggingarfulltrúa

Skipulagsmál

""

Borgarráð hefur samþykkt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs að ráða Nikulás Úlfar Másson í embætti byggingarfulltrúa í Reykjavík. Alls bárust 18 umsóknir, en fjórir drógu umsóknir sínar til baka. Capacent vann úr umsóknum.

Nikulás Úlfar Másson var talinn standa öðrum umsækjendum framar þegar á heildina er litið. Undanfarin ár hefur hann gegnt starfi skrifstofustjóra skipulags, bygginga og borgarhönnunar á umhverfis- og skipulagssviði og starfar sem settur byggingarfulltrúi um þessar mundir.

Nikulás Úlfar er menntaður arkitekt, en hann tók lokapróf í arkitektúr frá Portsmouth School of Architecture (University of Portsmouth) í Englandi árið 1985. Ferill hans hefur verið farsæll en hann hefur í mörg ár starfað sem forstöðumaður stofnana í stjórnsýslunni og á sveitastjórnarstigi eða frá 1991 bæði sem sérfræðingur og í stjórnunarstarfi.

Nikulás var deildarstjóri húsadeildar Árbæjarsafns árin 1991 - 2001, helming þess tíma var hann staðgengill borgarminjavarðar. Þá tók hann við starfi verkefnis- og teymisstjóra hjá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkur, sem hann sinnti í sex ár, eða þar til hann var skipaður forstöðumaður Húsafriðunarnefndar.

Undanfarin ar hefur hann verið skrifstofustjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði.

Reykjavíkurborg býður Nikulás Úlfar hjartanlega velkominn til starfa í embætti byggingafulltrúa.