Mikil svifryksmengun í upphafi ársins

Umhverfi

""

Styrkur svifryks í Reykjavík fyrstu klukkustundina á árinu 2017 var 1.451 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg en í fyrra var styrkurinn 363 mg.  

Styrkur svifryks fyrstu klukkustundina árið 2017 var 1.451 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg í Reykjavík og er það næstmesta mengunin frá áramótunum 2010.

Til samanburðar var styrkur svifryks fyrstu klukkustund ársins 2016 363 míkrógrömm, 2015 var hann 215 míkrógrömm og 2014  245 míkrógrömm. Um áramótin 2013 var styrkur svifryks 475 míkrógrömm, 2012 var hann 1.014 míkrógrömm, og 2011 284 míkrógrömm.  Um áramótin 2010 var hann 1.575 míkrógrömm og  var svifryk allan nýársdag yfir heilsuverndarmörkum.  

Um þessi áramót mældist meðalstyrkur svifryks í loftgæðafarstöð við leikskólann Grænuborg við Eríksgötu 904 míkrógrömm á rúmmetra fyrstu klukkustundina, í loftgæðafarstöð HER við Rofabæ var hann 1.159 og í stöð UST í Fjölskyldu og húsdýragarðinum 816.

Meðaltalsstyrkurinn á Grensás á nýársdag var 160 míkrógrömm á rúmmetra og fór styrkur svifryks því yfir sólahringsheilsuverndarmörkin í fyrsta sinn á árinu 2017. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.  Svifryk var einnig yfir sólarhringsmörkum í hinum 3 loftgæðamælistöðunum í Reykjavík. Hæsta hálftímagildið mældist kl. 01:30 í stöðinni við Grensás, 2418 míkrógr. á rúmmetra.

Hár styrkur svifryks í ár orsakast af því að nánast logn var fyrstu klukkustundir ársins og því lá svifrykið i loftinu lengur.  Styrkur svifryks féll hratt niður seinni part nætur.  

Styrkur svifryks fór níu sinnum yfir sólarhringheilsuverndarmörk á árinu 2016. 

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á www.reykjavik.is/loftgaedi en þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík.