Með okkar augum hlýtur Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2017

Mannréttindi Skóli og frístund

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti í dag dagskrárgerðarfólki og hugmyndasmiðum sjónvarpsþáttanna Með okkar augum Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2017 á mannréttindadegi Reykjavikurborgar. 

Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á þeim málum sem varða mannréttindi borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.

Þáttaröðin Með okkar augum hefur verið sýnd á RÚV síðastliðin sex ár og hafa þættirnir stuðlað að vitundarvakningu um stöðu fólks með þroskahömlun, getu þess, skoðanir og langanir. Með umfjöllun sinni hefur þáttastjórnendum tekist að auka skilning á réttindum fatlaðs fólks. Þau Andri Freyr Hilmarsson, Eiður Sigurðsson, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Skúli Steinar Pétursson, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir og Elín Sveinsdóttir, upptökustjóri veittu verðlaununum viðtöku.

Borgarstjóri sagði við afhendingu verðlaunanna að dagskrárgerðarfólkið sem stæði að gerð þáttanna verðskuldaði verðlaunin því með umfjöllun sinni hafi þau aukið skilning á réttindum fatlaðs fólks. Verðlaunin að þessu sinni eru 600 þúsund krónur.

Tjörnin Frístundamiðstöð hlýtur Hvatningarverðlaun mannréttindaráðs 2017

Elín Oddný Sigurðardóttir, formaður mannréttindaráðs afhenti starfsmönnum Tjarnarinnar frístundamiðstöðvar hvatningarverðlaun mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar.  Hvatningarverðlaunin eru veitt fyrir þróunar- og nýbreytnistarf einstaklinga, borgarstofnanna og fyrirtækja á sviði mannréttindamála.  Tjörnin hlýtur verðlaunin fyrir að standa að réttindagöngu barna. Í réttindavikunni er lögð áhersla á að kynna barnasáttmálann og réttindi barna fyrir börnunum og áhersla lögð á lýðræðisleg vinnubrögð. Gangan minnir á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og gefur börnum tækifæri til að fagna réttindum sínum. Verkefnið er liður í því að styrkja rödd barna og gera þau meðvituð um réttindi sín og annarra.