Á morgun, miðvikudaginn 4. október eftir kl. 9, hefjast malbiksframkvæmdir á Miklubraut við Klambratún. Unnið verður við syðri akbraut Miklubrautar milli Snorrabrautar og Lönguhlíðar fram eftir degi.
Framkvæmdirnar hafa aðeins áhrif á umferð til austurs sem verður beint um hjáleið um Bústaðavegi og Snorrabraut. Lokað verður fyrir alla umferð nema sjúkrabíla og strætisvagna á þessum kafla.
Malbikunin er meðal síðustu verkþátta við umbætur á Miklubraut við Klambratún sem fólst í að bæta forgang strætó og almennt umferðaröryggi. Skoða upplýsingasíðu í Framkvæmdasjá: Umbætur á Miklubraut við Klambratún