Magnað myrkur á Vetrarhátíð

Mannlíf Menning og listir

""
Fjögurra daga glæsileg Vetrarhátíð verður haldin frá 4. – 7. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Hátíðin hefst með setningarathöfn og mikilli ljósasýningu við Hörpu, fimmtudagskvöldið 4. febrúar. 
Þetta er í þrettánda sinn sem þessi hátíð ljóss og myrkurs er haldin en fjórar meginstoðir hátíðarinnar eru: Safnanótt, Sundlauganótt, Snjófögnuður og ljósalist ásamt 150 viðburðum sem þeim tengjast. Megintilgangur Vetrarhátíðar er að skemmta fólki á höfuðborgarsvæðinu og gefa því tækifæri til að njóta menningar og útiveru í eigin sveitarfélagi og/eða heimsækja nágranna sína í nærliggjandi sveitarfélagi.
 
Höfuðborgarstofa hefur yfirumsjón með hátíðinni og eru allir viðburðir á henni ókeypis. 
 

Skipulag Vetrarhátíðar:

 
4. febrúar, fimmtud. kl. 19.30: Opnunarkvöld við Hörpu, ljósalistaverk afhjúpað. 
5. febrúar, föstud. kl. 19-24: Safnanótt í tæplega 40 söfnum.
6. febrúar, laugard. 16-24: Sundlauganótt í 10 sundlaugum.
7. febrúar, sunnud. : Snjófögnuður í Bláfjöllum.
+150 viðburðir
 

Opnunarkvöld Vetrarhátíðar

 
Vetrarhátíð verður sett með afhjúpun verksins Slettireku, fimmtudaginn 4. febrúar kl. 19.30 við Hörpu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setur hátíðina. Á opnunarkvöldinu verður ljósahjúp Hörpu breytt í risastóran gagnvirkan striga sem almenningur getur myndskreytt með sýndarmálningu. Myndskreytingin fer þannig fram að vefsíðan paint.is er opnuð í síma og þar verður hægt að velja liti til að setja á glerhjúpinn. Verkið Slettireka er vinningstillaga þeirra Halldórs Eldjárns og Þórðar Hans Baldurssonar um efnilegasta listaverkið á ljósahjúp Hörpu fyrir Vetrarhátíð 2016.  
 

Safnanótt

 
Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 5. febrúar en þá opna tæplega fjörtíu söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu dyr sínar frá kl. 19 og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá til miðnættis. Íbúar og gestir borgarinnar á öllum aldri geta notið yfir 100 viðburða af öllum stærðum og gerðum á söfnum á höfuðborgarsvæðinu. Hægt verður að taka þátt í Safnanæturleiknum en heppnir gestir geta m.a. unnið árskort á söfn, listaverkabækur og fleira. Sérstakur Safnanæturstrætó gengur á milli safnanna á öllu höfuðborgarsvæðinu og auðveldar gestum heimsóknina. Miðstöð Safnanæturstrætó verður á Kjarvalsstöðum.
 

Skíða-og snjóbrettapartý á Arnarhóli

Skíða- og snjóbrettapartý á Arnarhóli föstudaginn 5. febrúar kl. 19. Þar mun  færasta skíða- og snjóbrettafólk landsins sýna listir sínar undir líflegri tónlist plötusnúða. Gestum og gangandi er einnig boðið að koma með bretti eða skíði og renna sér í skíðabrautinni sem er sérstaklega sett upp fyrir þennan viðburð. Þetta er í annað sinn sem Höfuðborgarstofa, Skíðasvæði Höfuðborgarsvæðisins og fyrirtækið Mintsnow halda skíða- og snjóbrettapartý á Arnarhóli en í fyrra var haldið sambærilegt partý sem tókst afar vel.
 

Sundlauganótt

 
Sundlauganótt verður haldin laugardagskvöldið 6. febrúar en frítt verður í sund frá klukkan fjögur til miðnættis í 10 sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu. Gestir fá að upplifa einstaka kvöldstund í sundlaugunum þar sem ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi. Dagskráin í ár er afar fjölbreytt en meðal þess sem er í boði er jóga, dans, sundpóló og  kórgjörningur í gufubaði. Þær sundlaugar sem taka þátt í Sundlauganótt að þessu sinni eru:
Álftaneslaug, Árbæjarlaug, Ásvallalaug, Klébergslaug, Lágafellslaug, Laugardagslaug, Salalaug (Sundlaugin Versölum), Sundhöll Reykjavíkur, Sundlaug Kópavogs og Vesturbæjarlaug.
 

Snjófögnuður

 
Við fögnum svo snjó og birtu í Bláfjöllum sunnudaginn 7. febrúar á lokadegi Vetrarhátíðar þar sem íbúum höfuðborgarsvæðisins er boðið að njóta skemmtilegrar viðburðadagskrár. Plötusnúður mætir á svæðið og skemmtir frá kl. 14-16. m.a. Frítt er fyrir 15 ára og yngri í fjallið auk þess sem 20% afsláttur er veittur af leigu á skíðabúnaði.
 

Vefur Vetrarhátíðar