Ljósmyndasýning á Skólavörðustíg

Mannlíf Umhverfi

""

Undanfarin sumur hefur Reykjavíkurborg boðið ljósmyndurum og listamönnum aðstöðu til sýninga á stöndum á göngugötuhluta Skólavörðustígs. Nú er leitað eftir áhugasömum fyrir sumarið. 

Auglýst er eftir umsóknum um sýningar í sumar. Tólf sýningarstandar  verða á götunni í sumar með plássi fyrir alls 24 myndir í stærðinni 110x150 cm. Hver sýning getur varað allt að 4-6 vikur, á tímabilinu 1. júní til 1. október.

Umsóknir þurfa að berast fyrir 25. apríl 2017. Með umsókn þarf að fylgja stutt lýsing á verkunum sem til sýnis verða og sýnishorn auk bakgrunnsupplýsinga umsækjanda.

Athygli er vakin á því að umsækjendur þurfa sjálfir að standa straum af kostnaði við prentun á verkunum sem til sýnis verða og að auglýsingar vöru eða fyrirtækja eru ekki heimilar á verkum eða sýningarstöndum.

Umsóknir og fyrirspurnir berist á netfangið gongugotur@reykjavik.is.