Lífsstílskaffi og betri svefn

""

á fyrsta lífsstílskaffi vetrarins, í Gerðubergi miðvikudaginn 4. október, fjallar dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi svefns fyrir andlega og líkamlega heilsu ásamt því að kynna nýútkomna bók sína, Svefn, þar sem fjallað er um algeng svefnvandamál og góðum svefnvenjum lýst.

Erla mun einnig svara spurningum gesta og veitir góð ráð. Hún hefur haldið fjölmörg námskeið og fræðslufyrirlestra um svefnvandamál og er með doktorspróf í svefnrannsóknum frá Læknadeild Háskóla Íslands í samstarfi við Háskólann í Pennsylvaniu. 

Hún hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) og sinnt þeirri meðferð undanfarin ár. Rannsóknir Erlu fjalla um samband svefnleysis, andlegrar heilsu og kæfisvefns og hafa vísindagreinar eftir hana birst í virtustu fræðiritum heims á sviði svefnrannsókna. Erla starfar hjá Sálfræðiráðgjöfinni þar sem hún sinnir m.a. meðferð við svefnleysi

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Lífsstílskaffi er hluti af viðburðaröðinni Kaffikvöld í Gerðubergi en í vetur er jafnframt boðið upp á Sagnakaffi, Heimspekikaffi og Bókakaffi á miðvikudagskvöldum. Nánari upplýsingar um kaffikvöld í Gerðubergi er að finna á heimasíðu Borgarbókasafnsins.