Leitað eftir tilnefningum til minningarverðlauna Arthurs Morthens

Skóli og frístund

""

Auglýst er eftir tilnefningum til verðlauna fyrir grunnskólastarf í Reykjavík í samræmi við stefnu um skóla án aðgreiningar. Stofnað var til verðlaunanna í minningu Arthurs Morthens. 

Í skóla án aðgreiningar einkennist starfið af fjölbreytni og viður­kenningu á mismunandi þörfum nemenda, þar sem allir nemendur taka virkan þátt í skólastarfinu og margbreytileikinn er sýnilegur og virtur.

Arthur Morthens, sem lést árið 2016, helgaði starfsævi sína börnum sem áttu á brattann að sækja og var jafnframt talsmaður þeirra í réttindabaráttu sem oft á tíðum var erfið. Hann horfði alltaf á styrkleika barna fremur en veikleika og barðist fyrir því að öll börn hefðu sömu tækifæri til náms. Hann vann ötullega gegn einangrun barna með sérþarfir og stóð í fylkingarbrjósti í stefnumótun fyrir mannréttindum þeim til handa í skóla án aðgreiningar.

Verðlaunin verða veitt í annað sinn í febrúar nk. en þau eru veitt árlega í fimm ár, einum grunnskóla í Reykjavík. 

Skilafrestur tilnefninga er til 31. janúar 2018. Allir geta sent inn tilnefningar á: Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða á netfangið sfs@reykjavik.is

Sjá tilnefningarblað.

Meira um verðlaunin.