Leikskólinn Hof flaggar Grænfána

Skóli og frístund

""

Það var hátíðarstemning fimmtudaginn 18. júní sl. þegar leikskólinn Hof flaggaði Grænfánanum öðru sinni.

Katrín Magnúsdóttir verkefnastjóri Skóla á grænni grein kom og afhenti fánann sem var dreginn að húni að viðstöddum börnum og starfsfólki Hofs. Þema skólans voru að þessu sinni lýðheilsa og samgöngur.

Í tilefni dagsins var kveikt upp í eldstæðum, grillaðar pylsur, bakaðar lummur og heitur safi drukkinn með.