Leikfélag Reykjavíkur fagnar 120 ára afmæli

Mannlíf Menning og listir

""

Leikfélag Reykjavíkur var stofnað 11. janúar 1897. Félagið er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og er jafnframt eitt elsta starfandi menningarfélag landsins.

 Leikfélag Reykjavíkur var frá upphafi mjög metnaðarfullt og félagarnir tilbúnir að leggja hart að sér til að standa fyrir sýningum í  hæsta gæðaflokki en í 14. grein stofnlaga félagsins stóð ,,allir fyrir einn og einn fyrir alla…“  - það endurspeglar hugsjónir félagsins og samstöðu félaganna sem hefur haldist til þessa dags.

Leikfélag Reykjavíkur hafði lengi aðsetur í Iðnaðarmannahúsinu eða Iðnó við Tjörnina en flutti í Borgarleikhúsið árið 1989. Starfsemi félagsins er styrkt að stærstum hluta af Reykjavíkurborg og setur upp allt að 15 leiksýningar á ári hverju.

Í tilefni afmælisins frumsýndi leikfélagið verkið Ræman eftir Annie Baker á afmælisdaginn þann 11. janúar sl. en það er sexhundraðasta frumsýningin hjá Leikfélagi Reykjavíkur.  Á sama tíma kynnir Leikhúsbarinn nýjan smáréttamatseðil sem mun veita leikhúsgestum meiri fjölbreytni í matarvali en áður.