Laun borgarfulltrúa munu fylgja launavísitölu

Fjármál Stjórnsýsla

""

Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær tillögu forsætisnefndar um gera breytingar á samþykkt um kjörum og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa. Með ákvörðuninni afsala borgarfulltrúar sér launahækkun samkvæmt úrskurði Kjararáðs ríkisins um hækkun þingfararkaups auk þess sem laun þeirra eru aftengd framtíðarákvörðunum ráðsins en laun kjörinna fulltrúa hafa miðast við 78,82% af þingfararkaupi.

Tillagan var samþykkt með níu atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata gegn atkvæði Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina. Aðrir borgarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Ef hækkanir hefðu tekið gildi samkvæmt úrskurði Kjararáðs um hækkun þingfararkaups hefðu grunnlaun borgarfulltrúa hækkað úr kr. 593.720 í kr. 856.949 en með samþykkt borgarstjórnar í dag munu grunnlaun borgarfulltrúa hækka úr kr. 593.720 í kr. 633.505 eða um 6,7%.

Með samþykkt borgarstjórnar nú verða hækkanir á launum allra kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg innan viðmiða Salek samkomulagsins auk þess sem þau muna héðan í frá taka breytingum í samræmi við launavísitölu í stað þess tengingu við þingfararkaup.

Tillagan sem samþykkt var er eftirfarandi:

„Lagt er til að samþykkt verði að gera breytingar á samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg þannig að heildarlaunakostnaður borgarfulltrúa og þóknanir annarra kjörinna fulltrúa taki framvegis breytingum til samræmis við launavísitölu. Grunnlaunin skulu miða við þróun launavísitölu frá síðasta úrskurði kjararáðs fyrir upphaf tímabilsins sem rammasamkomulag aðila vinnumarkaðarins miðar við, þ.e. marsmánuð 2013, og uppfærast í janúar og júlí ár hvert. Breytingin skal miðast við 1. nóvember 2016 og er skrifstofustjóra borgarstjórnar falið að vinna nauðsynlegar breytingar á samþykktinni.“

Í greinargerð með tillögunni er farið yfir þróun málsins en Alþingi ákvað að gera ekki breytingar á úrskurði Kjararáðs nr. 2016.3.001. sem hafa áhrif á fjárhæð þingfararkaups.

Forsætisnefnd Reykjavíkurborgar vann því tillögu um skipan launamála kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Í greinargerð forsætisnefndar með tillögunni segir:

„Tillaga nefndarinnar gerir ráð fyrir því að tenging við þingfararkaup verði afnumin og þess í stað verði tekin upp tenging við launavísitölu til þess að endurspegla betur almenna launaþróun þannig að gætt verði samræmis við rammasamkomulag aðila vinnumarkaðarins.“