Kveikt á jólaljósum á Reykjavíkurtrénu í Þórshöfn

Mannlíf Menning og listir

""

Fjölmenni var á Vaglinum í Þórshöfn í Færeyjum þegar kveikt var á jólaljósunum á Reykjavíkurtrénu laugardaginn 2. desember sl.

Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórnar, og afhenti tréð formlega fyrir hönd Reykjavíkurborgar við hátíðlega athöfn. Þetta er í fimmta sinn sem Reykjavíkurborg færir Þórshafnarbúum tré að gjöf sem þakklætisvott fyrir frændsemi þjóðanna tveggja.

Tréð er 12 metra hátt sitkagreni og var fellt á skógræktarsvæði Skógræktar Reykjavíkur á Elliðavatnsheiðinni í Heiðmörk um miðjan nóvember sl. Eimskip sá um flutning trésins til Færeyja.

Annika Olsen, borgarstjóri Þórshafnar flutti ræðu þar sem hún þakkaði Reykvíkingum fyrir fallega tréð og bað Líf um að bera frændum í vestri kveðju og óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár.

Því næst voru flutt jólalög og kveikt á jólaljósunum á trénu.

Frétt á vef Þórshafnar