Komdu út að leika

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Um verslunarmannahelgina verður blásið til fjölbreyttrar leikjadagskrár á Árbæjarsafni. Dagskráin er ætluð ungu fólki, en hún er að sjálfsögðu opin öllum þeim sem ætla að njóta þess sem Reykjavík hefur upp á að bjóða, þessa mestu ferðahelgi ársins.

Frá kl. 14, bæði sunnudag 3. ágúst og mánudag 4. ágúst, geta gestir keppt í pokahlaupi, skjaldborgarleik og reiptogi, svo nokkuð sé nefnt.

Á safninu er fjölbreytt úrval af útileikföngum til staðar, sem krökkum býðst að nota að vild, svo sem húla-hringir, snú-snú, kubb og stultur og flottir kassabílar. Á gamaldags róluvelli verður hægt að leika í rólunum, vegasaltinu eða í sandkassanum. Á sýningunni Komdu að leika er mikill fjöldi leikfanga frá ýmsum tímum sem krökkunum er frjálst að leika sér með.

Í Árbæ má kynnast sveitalífi fyrri alda og verður gestum og gangandi boðið upp á lummur. Vert er að minna á dýr í safninu, hér er að finna kýr og kálf, hesta og folald, kindur og lömb. Mjaltir eru kl. 16 alla daga og þá gefst gestum kostur á að smakka spenvolga mjólk.

Í Dillonshúsi verða að sjálfsögðu ljúffengar veitingar í boði alla helgina. Allir velkomnir!