Jólaskógur á Hólmsheiði

Umhverfi Íþróttir og útivist

""

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, fylgdi þeirri hefð í dag að höggva eigið tré í Jólaskógi Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Jólaskógurinn í ár er á Hólmsheiði rétt norðan við nýja fangelsið og er leiðin frá Suðurlandsvegi vel merkt.  Skógræktarfélag Reykjavíkur nýtir hefðina til að grisja skógræktarsvæði sín og mun í staðinn fyrir hvert tré sem höggvið er gróðursetja fimmtíu ný. Á vef félagsins segir að Íslensk jólatré séu ræktuð án eiturefna og einnig er umhverfisvænt að þau eru ekki flutt á milli landa.

Jólaskógurinn er opinn allar helgar til jóla kl. 11-16. Alla dagana verður líf og fjör, jólasveinar verða á staðnum og logandi varðeldur. Hægt er að kaupa heitt kakó og smákökur og jólalögin sungin, segir á vef Skógræktarfélagsins - heidmork.is - og þar er einnig leiðarlýsing.  

Nánari upplýsingar: