Jákvæð þróun í níu mánaða uppgjöri Reykjavíkurborgar

Fjármál

""

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – september 2016 var afgreiddur í borgarráði í dag fimmtudaginn 1. desember. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1.042 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 67 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því 975 mkr. betri en gert var ráð fyrir.

Betri rekstrarniðurstaða skýrist að stærstum hluta af lægri rekstrarkostnaði, sem var 889 mkr lægri en áætlun gerði ráð fyrir og meiri þjónustutekjum sem skiluðu 408 mkr umfram áætlun á fyrstu níu mánuðum ársins.  Á móti hækkuðu lífeyrisskuldbindingar 749 mkr umfram áætlun á tímabilinu.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.612 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 1.034 mkr eða 578 mkr betri en áætlun gerði ráð fyrir.

Jákvæðar tölur fyrir samstæðuna

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 17.549 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 8.466 mkr.

Rekstrarniðurstaðan er því 9.083 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Helstu ástæður fyrir betri afkomu má rekja annars vegar til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. og hins vegar lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna hagstæðrar gengisþróunar, gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu og lægri verðbólgu en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 14.652 mkr sem er 716 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

 

Eiginfjárhlutfall hækkar

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok tímabils 528.359 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 292.200 mkr og eigið fé var 236.159 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 13.166 mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 44,7% en var 42,9% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar¬svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

Níu mánaðar árshlutauppgjör

Skýrsla fjármálaskrifstofu með níu mánaða uppgjöri