Íslenskuverðlaun úr hendi frú Vigdísar Finnbogadóttur

Skóli og frístund

""

Sextíu og fimm nemendur í grunnskólum Reykjavíkur tóku í dag við Íslenskuverðlaunum unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, er verndari Íslenskuverðlauna unga fólksins og afhenti hún þau við hátíðlega athöfn í Norðurljósasal Hörpu. Meðal verðlaunahafa eru ungir lestrarhestar, framúrskarandi upplesarar, tvítyngdir nemendur sem náð hafa góðum tökum á íslensku á skömmum tíma, sagnahöfundar og ljóðskáld.

Þetta er í ellefta sinn sem Íslenskuverðlaunin eru afhent en þau eru á vegum skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Íslenskuverðlaununum er ætlað að auka áhuga grunnskólanema í Reykjavík á íslenskri tungu og hvetja þá til framfara í tjáningu í töluðu og rituðu máli. Allir grunnskólar í borginni geta tilnefnt nemendur eða nemendahópa, einn á hverju skólastigi.

Verðlaunin voru að þessu sinni viðurkenningarskjal undirritað af frú Vigdísi, verndara verðlaunanna, og bókin Ljóðaúrval með ljóðum Jónasar Hallgrímssonar í samantekt Böðvars Guðmundssonar. Verðlaunhafar fá einnig boð frá Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og Vigdísarstofnun í móttöku í Veröld – húsi Vigdísar, Brynjólfsgötu 1, þriðjudaginn 5. desember kl. 17. Andri Snær Magnason, rithöfundur og stjórnarformaður Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO, spjallar við gesti um orðlistina. Einnig verður leiðsögn um sýninguna Samtal sem fjallar um líf og störf Vigdísar Finnbogadóttur.

Við verðlaunaathöfnina í Hörpu í dag voru mættir um 500 boðsgestir, verðlaunahafar, fjölskyldur þeirra, skólastjórar o.fl. Eva Einarsdóttir, varaformaður skóla- og frístundaráðs, bauð gesti velkomna og var kynnir í athöfninni. Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs flutti setningarræðu, og frú Vigdís Finnbogadóttir flutti ávarp. Afhending verðlaunanna var í höndum Vigdísar og Mörtu Guðjónsdóttur formanns nefndar um Íslenskuverðlaun og þeim til fulltingis voru þeir Hermann Valsson og  Kjartan Magnússon fulltrúar í skóla- og frístundaráði. Nemendur úr Skólahljómsveit Austurbæjar og Tónskóla Sigursveins fluttu tónlist. Samkvæmt venju lauk athöfninni með því að gestir risu úr sætum og sungu saman „Á íslensku má alltaf finna svar“ eftir Þórarin Eldjárn og Atla Heimi Sveinsson.