Innköllun á Semper Mini Ringar Puffad Majs.

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""
Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Mini Ringar Puffad Majs í 20 g pokum vegna þess að varan inniheldur of mikið af B1 vítamíni sem hefur áhrif á bragð hennar.  Mat Semper AB er að engin hætta fylgi neyslu vörunnar.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Semper
Vöruheiti: Mini Ringar Puffad Majs
Strikanúmer: 7310100400147
Nettóþyngd: 20 g
Best fyrir: 19.04.2017
Framleiðandi:  Semper AB, Svíþjóð
Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaup á tímabilinu 20. maí til 5. júní 2016.
Viðskiptavinum Bónus og Hagkaupa sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.  Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5645 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.