Innköllun á First Price rúsínum

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""
Fréttatilkynning fra matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Innköllun á First Price rúsínum vegna aðskotahlutar sem fannst í vörunni.
Efni: Kaupás hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað First Price rúsínur sökum aðskotahluts úr plasti.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
 
Vörumerki: First Price
Vöruheiti: Rúsínur
Strikanúmer: 7311041074183
Lotunúmer: Öll lotunúmer
Nettó magn: 250 gr
Best fyrir: allar dagsetningar
Framleiðandi: Sun Maid growers of California
Framleiðsluland: Bandaríkin
Dreifingaraðili: Kaupás ehf
Dreifing: Allar verslanir Krónunnar, allar verslanir Kjarvals & Nóatún Austurveri
 
Viðskiptavinum sem hafa keypt vörurnar í framangreindum verslunum er bent á að neyta þeirra ekki og farga eða skila þeim í viðkomandi verslun.
 
Tengill