Innkallað Cumin krydd

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""
Heilbrigðiseftirlit Reykajvíkur innkallar malað cumin krydd frá Indlandi vegna þess að Salmonella enteritidis greindist í vörunni.
Matvælastofnun hefur látið matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vita að borist hafi tilkynning í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópusambandsins fyrir matvæli og fóður (RASFF) um innköllun á möluðu cumin kryddi frá Indlandi þar sem Salmonella enteritidis greindist í vörunni.
 
Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur ákveðið að innkalla vöruna frá neytendum.  Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
 
Vöruheiti: Ground cumin – Jeera powder.
Lotunúmer: P353340.
Best fyrir: 31. desember 2017.
Nettóþyngd: 100 g.
Framleiðsluland: Indland.

Dreifing: Verslanir Eir ehf. Bíldshöfða 16 og Laugavegi 116 (Mai Thai), verslun Vietnam Market, Suðurlandsbraut 6.
 

Viðskiptavinum sem hafa keypt vörurnar í framangreindum verslunum er bent á að neyta þeirra ekki og farga eða skila þeim í viðkomandi verslun.