Innkalla Bulletproof heilsubita

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

""

Verslun Gló hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna Bulletproof Collagen Bar sem seld hefur verið í verslun Gló Fákafeni 11. Ástæðan er tilkynning framleiðanda um listeríusmit (Listeria monocytogenes), sem upp kom í hráefnisverksmiðju birgis.

Ekki hefur verið tilkynnt um smit vegna neyslu vörunnar en af öryggisástæðum eru neytendur beðnir um að neyta ekki vörunnar, heldur skila henni gegn endurgreiðslu.

Innköllunin á við um allar bragtegundir og stærðir með eftirfarandi lotunúmer:

Fudge Brownie Collagen Bar (Lotunúmer: 0957-01, 1007-01, 1087-01, 1177-01, 1257-01, 1437-01, 1497-01) Fudge Brownie Collagen Bite (Lotunúmer: 1227-01, 1327-01, 1517-01) Lemon Cookie Collagen Protein Bar (Lotunúmer: 1017-01, 1027-01, 1387-01) Vanilla Shortbread Collagen Protein Bar (Lotunúmer: 1097-01, 1167-01, 1237-01, 1357-01)Vanilla Shortbread Collagen Protein Bite (Lotunúmer: 1147-01, 1217-01)

Vörumerki: Bulletproof Collagen Bar / Bulletproof Collagen Bite
Best fyrir: Allar dagsetningar
Nettómagn: 45 g/21 g
Innflytjandi: Gló Fákafeni
Dreifing: Verslunin Gló Fákafeni 4

Þeir neytendur sem eiga umræddar vörur eru beðnir um að farga henni/þeim eða skila til Gló Fákafeni gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar: Gló Fákafeni 11 síma 553 1111