Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs

Skóli og frístund

""
Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs voru afhent í dag í Tjarnarsalnum. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á því gróskumikla skóla- og frístundastarfi sem fram fer í Reykjavík. 
Fyrr í vetur, á Öskudagsráðstefnu grunnskólakennara, var starfsfólki grunnskóla veittar viðurkenningar og verðlaun fyrir verkefni unnin í grunnskólum borgarinnar. Nú á Stóra leikskóladeginum, var komið að því að veita starfsfólki í leikskólum Reykjavíkur hvatningarverðlaun.

Verðlaunin eiga að veita starfsfólki  jákvæða hvatningu og stuðla að nýbreytni- og þróunarstarfi.  Tjáning, sjálfstraust, læsi, fjöltyngi og þjónusta við heyrnarlaus og heyrnarskert börn var þema verðalaunaverkefnanna og viðurkenningar voru veittar fyrir þverfaglegt samstarf milli skólastiga og forvarnir í nærsamfélaginu.

Verðlaunin eru rós í hnappagat starfsins sem þau hlýtur, þau eru viðurkenning fyrir vel unnin verki í þágu barna og staðfesting þess að starfið sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.

Verðlaunahafar í ár eru;
  • Leikskólinn Laufskálar hlaut verðlaun fyrir leiklistaverkefnið Ég get, sjáðu mig.
  • Leikskólinn Miðborg hlaut verðlaun fyrir verkefnið Námskeið fyrir Pólska foreldra.
  • Leikskólinn Sólborg hlaut verðlaun fyrir verkefnið  Ráðgjafaskóli vegna heyrnarlausra og heyrnarskertra barna.
  • Fríða Bjarney Jónsdóttir hlaut verðlaun fyrir áralangan stuðning við málörvun og læsi fjöltyngdra barna í leikskólum
Verðlaunin voru álft, lóa og spói  (útskornir fuglar eftir Ingibjörgu H. Ágústsdóttir listakonu í Stykkishólmi). 
 
Auk verðlaunanna hlutu eftirfarandi samstarfsverkefni viðurkenningu;
 
  • Leikskólarnir Blásalir, Heiðarborg, Rauðaborg og Selásskóli fékk viðurkenningu fyrir verkefnið  Heimahagar.
  • Leikskólarnir Bakkaborg, Borg og Breiðholtsskóli fékk viðurkenningu fyrir verkefnið  Sumarskóli elstu barna í Bakkahverfi.
  • Forvarnarteymi Vesturbæjar í samstarfi við Leikskóla í Vesturbæ fékk viðurkenningu fyrir samstarfsverkefnið,  Eineltisáætlun leikskóla Vesturbæjar.
Í dómnefnd sátu fyrir hönd skóla- og frístundaráðs Skúli Helgason formaður, Eva Einarsdóttir, Örn Þórðarson og Sigríður Pétursdóttir. Auk þeirra voru í dómnefnd Kristín Ólafsdóttir (fulltrúi félags foreldra leikskólabarna), Helga Ingimarsdóttir (fulltrúi félags leikskólakennara), Ingibjörg Kristleifsdóttir (fulltrúi félags stjórnenda leikskóla) og Sigrún Einarsdóttir (starfsmaður á SFS).