Hvað er helst í fréttum?

Mannréttindi Menning og listir

""

Hvað er helst í fréttum? er fjölmenningarleg þjónusta sem boðið er upp á í Borgarbókasafninu í Grófinni.  Verkefnið er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Hugmyndin með verkefninu er að stuðla að þátttöku í samfélaginu og skapa vettvang fyrir umræður um samfélagsmál.

Verkefninu Hvað er að frétta? verður ýtt úr vör fimmtudaginn 3. mars kl. 17.30 þegar þær Sigyn og Snæfríður Jónsdætur, sjálfboðaliðar hjá Rauða krossinum, taka á móti áhugasömum gestum og aðstoða þá við að fara yfir helstu fréttir og benda á þau mál sem eru í brennidepli hverju sinni.

Þátttakendum er einnig bent á hvernig hægt er að taka virkan þátt í samfélaginu með því að koma á framfæri greinum og fréttum við íslenska fjölmiðla. Þar að auki gefst þátttakendum tækifæri til að kynnast starfsemi og safnkosti Borgarbókasafnsins, hitta nýtt fólk, styrkja tengslin og taka þátt í menningarviðburðum.

Markmiðið er að þátttakendur:

- kynnist samfélagslegri umræðu á Íslandi og fá þjálfun í að fylgjast með fjölmiðlum
- kynnist mismunandi fjölmiðlum á Íslandi
- fái leiðbeiningar við að leita að fréttum
- geti komið með óskir og fengið aðstoð við að skilja betur útvaldar greinar

Verkefnið er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Hugmyndin með verkefninu er að stuðla að þátttöku í samfélaginu og skapa vettvang fyrir umræður um samfélagsmál.

Alla fimmtudaga kl. 17.30