Hugur okkar er hjá íbúum Parísar og frönsku þjóðinni

Stjórnsýsla Mannlíf

""
„ Hugur okkar allra er hjá frönsku þjóðinni, íbúum Parísarborgar, fórnarlömbum árásarinnar, ættingjum þeirra og vinum“, segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur um þau voðaverk sem framin voru í París í gær. 
Borgarstjóri sendi í dag fyrir hönd allra íbúa Reykjavíkur samúðarskeyti til Anne Hidalgo borgarstjóra Parísar og Francois Hollande forseta þar sem skipulagðar árásir sem beinast að saklausu fólki eru harmaðar. 
Þjóðfánar Frakklands og Íslands voru í morgun dregnir í hálfa stöng við Ráðhús Reykjavíkur, sem í kvöld verður lýst í fánalitum. 
Á vef franska sendiráðsins er vakin athygli á samkomu við franska sendiráðið kl. 17.00 í dag og að samúðarbók liggi frammi í sendiráðinu.