Hreinsum saman - tökum þátt og tínum rusl

Umhverfi

""

Reykjavíkurborg tekur þátt í evrópskum hreinsunardögum núna í apríl eins og undanfarin ár og áhersla verður lögð á dagana 24.-29. apríl. Laugardaginn 28. apríl má kalla stóra daginn í starfinu. #hreinsumsaman.

Reykjavíkurborg vinnur nú að því hörðum höndum að hreinsa og fegra borgina og býður nú öllum að taka þátt í vorhreinsuninni. Fréttir hafa þegar borist af hópum sem hafa tekið sig til og tína rusl á völdum svæðum. Nefna má Plokk á Íslandi sem snýst um að tína upp rusl á förn­um vegi á meðan gengið er eða skokkað.

Borgarbúar, íbúasamtök, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að taka saman höndum og hreinsa í sínum nánasta umhverfi.

Allur aprílmánuður er undir í þessu hreinsunarstarfi en lögð verður áhersla á dagana 24.-29. apríl. Laugardaginn 28. apríl verða þrjár hverfastöðvar Reykjavíkurborgar opnar, á Fiskislóð, Stórhöfða og í Jafnaseli. Einnig verða pallbílar á ferðinni. Veittar eru upplýsingar og ruslapokar verða afgreiddir í síma 411 8420 (Njarðagötu) og 411 8440 (Jafnaseli). Þá má fá ruslapoka í hverfastöðinni á Stórhöfða fyrir almennt rusl en ekki garðúrgang.

Hvernig er best að bera sig að?

Íbúar mega skilja eftir rusl á völdum svæðum, sem starfsfólk hverfastöðvanna sér svo um að koma í Sorpu. Hægt er að  láta vita af uppsöfnun á rusli með því að senda inn ábendingu á ábendingarvef okkar eða skilja eftir skilaboð á facebook síðunni Hreinsum saman Eins má láta vita af ruslapokum hjá þjónustuveri Reykjavíkurborgar síma 411-1111 á virkum dögum.

Forsvarsmenn fyrirtækja eru hvattir til að finna tíma fyrir starfsfólk til að tína rusl á völdum svæðum og koma ruslinu í Sorpu. Ef það finnast sprautunálar og önnur hættuleg efni í borgarlandinu eru íbúar hvattir til að láta vita af því, starfmenn hverfastöðvanna eiga réttan útbúnað til farga því með öruggum hætti.

Eldhugar í umhverfismálum

Veitt verður viðurkenning í umhverfismálum á hreinsunardögunum 2018 undir heitinu Eldhugar í umhverfismálum. Árið 2016 fengu umhverfissinnar af yngri kynslóðinni viðurkenningu borgarstjóra og árið 2017 voru það umhverfissinnar af eldri kynslóðinni sem nefnast Korpúlfar.

Skráningarsíða

Hægt er að mæla sér mót og skrá sig, fyrir þá sem það vilja, og velja opið leiksvæði og nágrenni á sérstakri skráningarsíðu. Öll opin leiksvæði eru skráð inn á https://reykjavik.is/hreinsumsaman og auðvelt er að velja sér afmarkaðan stað á korti. Þeir sem vilja geta fengið ruslapoka á hverfastöðvum Reykjavíkurborgar á Njarðargötu, við Jafnasel og Stórhöfða á laugardeginum 28. apríl eða dagana á undan. Húsfélög eru hvött til að taka saman höndum og hvetja íbúa til að taka þátt.

Tenglar

Evrópskir hreinsunardagar

Hreinsum saman – viðburður

Hreinsum saman – skráning

Ábendingarvefurinn

#hreinsumsaman