Hækkun á styrk svifryks við umferðargötur

Heilbrigðiseftirlit

""

Gildi svifryks eru há við umferðargötur. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur varar fólk sem er viðkvæmt í öndunarfærum og börn að vera mikið úti við í nágrenni við miklar umferðargötur á meðan logn er og þurrt í veðri. 

Styrkur svifryks (PM10) hefur verið hár það sem af er degi 7. desember skv. mælingum í fastri mælistöð við Grensásveg. Klukkan 15:30 var hálftímagildi svifryks við Grensásveg 140 míkrógrömm á rúmmetra og verður líklega yfir sólarhringsheilsuverndarmörkum í nágrenni við miklar umferðargötur. Nú er hægur vindur og kalt, götur þurrar og litlar líkur á úrkomu. Næstu daga er búist við svipuðum veðurfarsaðstæðum.

Sólarhrings heilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðargatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á vef Reykjavíkurborgar. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru nú staðsettar við leikskólann Grænuborg við Eiríksgötu og við Hringbraut 26.

Ákveðið hefur verið að rykbinda Miklubraut og vestur Hringbraut svo og Grensásveg til að draga úr svifryki í borginni.