Hækkun fæðisgjalda og aukin gæði

Skóli og frístund

""
Borgarstjórn samþykkti í gær, 20. september, að frá og með 1. október 2016 hækki  fæðisgjald í leik- og grunnskólum borgarinnar um 100 krónur á dag. Hækkuninni mun alfarið renna til skólamötuneyta í kaup á hráefni. Með þessu ætti að skapast svigrúm til að auka gæði matarins verulega.
Breytingin hefur það í för með sér að  fæðisgjald vegna barna í leikskóla sem eru skráð í  sjö til níu klukkustundir á dag hækkar úr 8.320 krónum á mánuði  í 10.480 krónur á mánuði.
 
Verð fyrir máltíðir nemenda í grunnskólum borgarinnar hækkar úr 7.100  krónum í 9.270 á mánuði.
 
Framlag Reykjavíkur verður með þessu sambærilegt framlögum sveitarfélaga sem leggja mest í hráefnisframlög til skólamötuneyta. Leikskólagjöld og önnur gjöld vegna skólagöngu barna verða áfram með þeim lægstu á landinu.

Hjálagður listi yfir breytingar