Hæ hó og jibbijei!

Skóli og frístund

""

Börnin í leikskólanum Blásölum tóku forskot á þjóðhátíðardaginn í morgun og fóru í skrúðgöngu um hverfið sitt í Selásnum. 

Börnin skemmtu sér vel á sumarhátíð í dag, en hún hófst á skrúðgöngu um hverfið með íslenska fánann. Þá léku þau sér á fánaprýddri skólalóðinni með leikjum og þrautum. Hápunktur gleðinnar var þegar íþróttaálfurinn kom í heimsókn.

Enginn lét smá rigningu á sig fá og tóku hressilegt forskot á þjóðhátíðardaginn með söng og fánasveiflum.