Grunnskólar settir 22. ágúst

Skóli og frístund

""

Hátt í 1.600 sex ára börn hefja nám í grunnskólum borgarinnar nú í ágúst en skólarnir verða settir föstudaginn 22. ágúst. 

Grunnskólanemar í borginni verða rösklega 14.000 í vetur en í fyrravetur voru þeir 13.635. Nánari upplýsingar um hvenær nemendur í 2. – 10. bekk eiga að mæta við skólasetningu svo og hvernær 1. bekkingar eiga að mæta eru á heimasíðum skólanna. Þar eru jafnframt frekari upplýsingar um upphaf almennrar kennslu og innkaupalistar. Sjá heimasíður grunnskólanna.

Um 1.400 börn fædd á árinu 2012 eru jafnframt að hefja leikskólagöngu þetta haustið en gert er ráð fyrir að rösklega 7.000 börn verði í leikskólum í borginni í vetur.