Göngugötur í miðborginni frá 1. maí

Mannlíf Samgöngur

""

Tími göngugatna í miðborginni hefst 1. maí næstkomandi. Göngugötum er ætlað að auðga mannlíf miðborgarinnar og bæta aðgengi gangandi og hjólandi fólks að verslun og þjónustu. Í könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur árið 2015 voru 74% svarenda jákvæðir gagnvart göngugötum en einungis 13% neikvæðir og hafði þá ánægja borgarbúa aukist jafnt og þétt frá því göngugötuverkefnið byrjaði. 

Eftirfarandi götur verða göngugötur frá 1. maí til 1. október 2017:

·        Pósthússtræti milli Kirkjustrætis og Hafnarstrætis

·        Austurstræti ásamt Veltusundi og Vallarstræti.

·        Laugavegur og Bankastræti, frá Vatnsstíg að Þingholtsstræti

·        Skólavörðustígur milli Bergstaðastrætis og Laugavegar.

 

Göturnar verða opnar fyrir akstur milli kl. 07 og 11 virka daga en bifreiðastöður í göngugötum verða óheimilar á öðrum tímum eins og venja er.

Komið verður fyrir bekkjum, blómakerum og öðrum götugögnum á svæðinu til að gleðja augað og lífga upp á mannlífið, Laugavegur verður málaður á kafla eins og síðustu ár og unnið að ýmsum sumarverkefnum á göngugötusvæðinu.

Til þess að göngugöturnar heppnist sem best er samstarf rekstraaðila og borgarinnar mikilvægt. Lífleg miðborg með auknum fjölda gesta er mikið gleðiefni en því fylgir aukið álag á hreinsun og viðhald. Rekstraraðilar eru því beðnir um að leggja borginni lið við að halda umhverfinu snyrtilegu í kringum  starfsemi sína, sér í lagi veitingastaðir og kaffihús.