Gleðilegan þjóðhátíðardag

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Dagskrá þjóðhátíðardagsins í Reykjavík er glæsileg en aðalhátíðarhöldin fara fram kringum tjörnina í Reykjavík en ennfremur í aðliggjandi görðum og götum. Í boði verða fjölskylduskemmtanir, stórtónleikar, götuleikhús, dansveisla, sirkus, leiktæki, veitingatjöld, íþrótta- og fornbílasýningar og margt margt fleira. Ókeypis er í öll tæki á vegum hátíðarhaldara. 

Dagskrá þjóðhátíðardagsins í Reykjavík er glæsileg en aðalhátíðarhöldin fara fram kringum tjörnina í Reykjavík en ennfremur í aðliggjandi görðum og götum. Í boði verða fjölskylduskemmtanir, stórtónleikar, götuleikhús, dansveisla, sirkus, leiktæki, veitingatjöld, íþrótta- og fornbílasýningar og margt margt fleira. Ókeypis er í öll tæki á vegum hátíðarhaldara. Alla dagskrá hátíðarhaldanna má nálgast á vefnum 17juni.is. Höfuðborgarstofa heldur í fyrsta skipti utan um hátíðardagskrána í Reykjavík og hvetur fólk til að fjölmenna í bæinn í sínu fínasta pússi og taka þátt í Þjóðhátíðardeginum okkar 17. júní.

Dagskráin hefst á Austurvelli með guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 10.15 en hátíðarathöfn á vegum Alþingis og Forsætisráðuneytisins hefst kl 11.10. Þjóðbúningurinn verður í öndvegi að venju á þessum degi og verða hátt í 60 í íslenska þjóðbúningum við hátíðarathöfnina. Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður upp á aðstoð við að klæðast þjóðbúningum, svo sem festa húfur og hnýta peysufataslifsi í Iðnó kl. 10-11. Þaðan verður svo gengið að hátíðarhöldunum á Austurvelli.

Þjóðhátíð í Hljómskálagarðinum kl. 13-17.30
Í Hljómskálagarðinum verður afar fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Skólahreystibraut verður sett upp á Ísbjarnarflöt í fyrsta skipti þar sem hægt verður að spreyta sig í hinum ýmsu  íþróttagreinum. Keppnin Sterkasti maður Íslands hefst svo þar kl. 13.30. Skrúðgangan frá Laugavegi kemur í garðinn um kl. 14 ásamt Stuðmönnum sem hefja stórtónleika í kjölfarið sem standa til kl. 17.30. Meðal þeirra sem koma fram eru Svala Björgvins, Daði Freyr, söngkonan Hildur og hljómsveitin Beetween Mountains sem sigraði Músíktilraunir í ár, Emmsjé Gauti lýkur tónlistarveislunni og kemur fram kl. 17.15. Skátar sjá um náttúruþrautabraut,leiktæki og hoppukastala. Sirkus Íslands verður með sýningar þar sem litríkir karakterar bregða á leik og börn og fullorðnir fá að spreyta sig í allskyns sirkuskúnstum. Víkingafélagið Víðförull sýnir lifnaðarhætti víkinganna og listhópar Hins hússins og Götuleikhússins troða upp. Brúðubílinn verður á sínum stað og skemmtir ungum sem öldnum. Ýmsar uppákomur verða á aukasviði í garðinum þar sem listafólk og tónlist verða í öndvegi.
Í Ráðhúsinu verður slegið upp allsherjar dansveislu, á Ingólfstorgi verður boðið uppá hjólabrettapartý ef veður leyfir, í Hörpu verða tónleikar og fornbílasýning við húsið og í Iðnó verða leikkonur 50+ með sýningu og gjörning. Listhópar Hins hússins og Götuleikshússins verða á sveimi um bæinn og troða upp með ýmsum skemmtilegum uppákomum. Skemmtidagskráin hefst kl.13 og stendur til kl. 17.30. Skátar leiða skrúðgöngu kl. 13 frá horni Barónsstígs og Laugarvegs, niður Laugaveg og í Hljómskálagarð og frá Hagatorgi í Hljómskálagarð, Stuðmenn reka lestina. Við vekjum athygli á að aðliggjandi götur í kringum hátíðarsvæðið eru lokaðar frá kl. 7-19.

Nánar um dagskránna í dag:
Morgundagskrá á Austurvelli kl. 10-12
Dagskráin hefst kl. 10 með samhljómi kirkjuklukkna í Reykjavík og síðan hefst hátíðarguðsþjónustu í Dómkirkjunni þar sem Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup predikar og biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir og Sr. Sveinn Valgeirsson þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormars en einsöngvari er Heiðdís Hanna Sigurðardóttir.

Hátíðarathöfn á vegum Alþingis og Forsætisráðuneytisins hefst á Austurvelli kl. 11.15 en henni verður sjónvarpað og útvarpað á RÚV. Forseti Íslands, hr.Guðni Th. Jóhannesson, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson flytur hátíðarræðu. Fjallkonan flytur ávarp en ávallt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til á hátíðarathöfninni. Mótettukór Hallgrímskirkju og Graduale Futuri, eldri barnkór Langholtskirkju syngja og lúðrasveit Reykjavíkur leikur.Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem forseti borgarstjórnar, Líf Magneudóttir, leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur við athöfnina.

Skrúðgöngur kl.13,  Stuðmenn reka lestina
Skátar og hestamenn frá Fáki leiða skrúðgöngu kl. 13 frá horni Barónsstígs og Laugarvegs niður Laugaveg og í Hljómskálagarð. Lúðrasveitin Svanur leikur og hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn reka lestina á pallbíl. Skátar leiða á sama tíma skrúðgöngu frá Hagatorgi í Hljómskálagarð. Lúðrasveit Verkalýðsins leikur.

Þjóðhátíð í Hljómskálagarðinum kl. 13-17.30
Í Hljómskálagarðinum verður afar fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Skólahreystibraut verður sett upp á Ísbjarnarflöt í fyrsta skipti þar sem hægt verður að spreyta sig í hinum ýmsu  íþróttagreinum. Keppnin Sterkasti maður Íslands hefst svo þar kl. 13.30 en keppnin er ein elsta og virtasta kraftakeppni heims og rekur sögu sína frá árinu 1985. Skrúðgangan frá Laugavegi kemur í garðinn um kl. 14 ásamt Stuðmönnum sem hefja stórtónleika í kjölfarið sem standa til kl. 17.30. Meðal þeirra sem koma fram eru Svala Björgvins, Daði Freyr, söngkonan Hildur og hljómsveitin Beetween Mountains sem sigraði Músíktilraunir í ár, Emmsjé Gauti lýkur tónlistarveislunni og kemur fram kl. 17.15. Skátar sjá um náttúruþrautabraut,leiktæki og hoppukastala. Sirkus Íslands verður með sýningar þar sem litríkir karakterar bregða á leik og börn og fullorðnir fá að spreyta sig í allskyns sirkuskúnstum. Víkingafélagið Víðförull sýnir lifnaðarhætti víkinganna og listhópar Hins hússins og Götuleikhússins troða upp. Brúðubílinn verður á sínum stað og skemmtir ungum sem öldnum. Ýmsar uppákomur verða á aukasviði í garðinum þar sem listafólk og tónlist verða í öndvegi. 

Dansveisla í Ráðhúsinu kl. 14-18
Slegið verður upp dansveislu í Ráðhúsinu frá kl. 14-18. Þar kynna dansarnir Friðrik Agni Árnason og Anna Zerin nýtt dansfitness frá Mið-Austurlöndunum, boðið verður uppá afrískt dans- og trommuatriði sem að endar með því að áhorfendur taka þátt í dansi undir stjórn danskennara. Sýndur verður breikdans frá Kramhúsinu og salsa frá Salsa Iceland þar sem fólk getur jafnframt fengið danskennslu og að lokum verður slegið upp harmonikkuballi. 

Hjólabrettapartý á Ingólfstorgi kl. 15-17
Íslenska hjólabrettafyrirtækið Mold Skateboards í samstarfi við Jaðar íþróttafélag Íslands blæs til heljarinnar hjólabrettasýningu á Ingólfstorgi. Komið verður fyrir nokkrum góðum pöllum og má búast við glæsilegu rennsli og blússandi góðri stemningu. Ef það rignir verður því miður að blása viðburðinn af vegna slysahættu.

Iðnó- Konur og Krínolín kl. 13- 17.30
Heimilisiðnaðarfélag Íslands sýnir þjóðbúninga kl.13. Faldbúningar, kyrtlar, 19. og 20. aldar upphlutir og peysuföt ásamt barnabúningum eru meðal þess sem fyrir augu ber. Leiksýningin Konur og Krínólín hefst kl. 16 þar sem fimmtán konur 50+ taka þátt í gjörningi. Viðfangsefnið er tíska og hönnun í gegnum aldirnar og áhrif tískubylgja í fatnaði og fylgihluta á líf, störf og líðan kvenna. Tónslistaratriði verða fléttuð inní gjörninginn. Listhópar Hins hússins troða upp og dagskránni lýkur með því að Elín Halldórsdóttir leikur létt lög og ballöður.

Þjóðin fagnar í Hörpu kl. 14-18
Harpa fagnar Þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. júní með skemmtilegri dagskrá. Baldvin Snær Hlynsson og Bjarni Már Ingólfsson spila jazz, Reykjavík Classics kynnir dagskrá sumarsins, Miðbæjarkvartettinn syngur íslenska slagara, Bergmál Band spilar og Harpa International Music Academy kynnir starfsemi og tónleika akademíunnar, Dúóið Ýr og Agga og Bee bee and the Blue birds troða upp. Dagskránni lýkur með því að Skuggamyndir frá Býsans leika.