Friðarverðlaun LennonOno afhent á afmælisdegi John Lennon

Mannlíf Menning og listir

""

Yoko Ono veitti fjórum alþjóðlegum friðarsinnum viðurkenningu úr LennonOno-friðarsjóðnum / LennonOno Grant for Peace á afmælisdegi John Lennon í gær sunnudaginn 9. október  í Hörpu. Viðurkenningin er veitt annað hvert ár í Reykjavík í tengslum við tendrun Friðarsúlunnar í Viðey og er þetta í sjötta sinn sem athöfnin fer fram hér á landi en verðlaunin voru fyrst veitt í New York árið 2002.

Handhafar verðlaunanna í ár eru:

Ai Weiwei, kínverskur listamaður og aðgerðarsinni f. 1957 í Peking. 
Anish Kapoor, bresk/indverskur listamaður f. 1954 í Bombay.
Katalin Ladik ungverskt skáld, gjörningalistamaður og leikari f. 1942 í Novi Sad í Serbíu.  
Ólafur Elíasson listamaður f. 1967 í Kaupmannahöfn.

Allir verðlaunahafarnir nema Ai Weiwei verða viðstaddir verðlaunafhendinguna, Lennon Ono Grant for Peace 2016.

Verðlaunahafarnir hafa tilkynnt hvaða góðgerðarsamtök þeir völdu að  styrkja í tengslum við verðlaunin: 

Ai WeiWei valdi að styrkja  KANAY Foundation.
Anish Kapoor valdi að styrkja Helen Bamber Foundation.
Katalin Ladik valdi að styrkja Hungarian Interchurch Aid.
Ólafur Elíasson valdi að styrkja Maternity Foundation.

Nora Jumblatt stofnandi Kayany Foundation, sem Ai Weiwei vill styrkja, tók við verðalununum fyrir hans hönd. Samtökin voru  stofnuð árið 2013 sem svar við vaxandi þörf á grunnskólamenntun fyrir sýrlensk flóttabörn í Líbanon. Samtökin byggja skóla og veita sýrlenskum börnum  sem búa í Bekaa dalnum í Líbanon tækifæri til skólagöngu. kayany-foundation.org

Góðgerðarsamtökin sem Anish Kapoor hefur valið sér, Helen Bamber Foundation, styðja flóttamenn og hælisleitendur sem hafa mátt þola gífurlega grimmd af mannavöldum, meðal annars pyntingar og ofsóknir vegna trúar- eða  stjórnmálaskoðana auk mansals og þvingunar til vændis. 
helenbamber.org

Hungarian Interchurch Aid, samtökin sem Katalin Ladik hefur ákveðið að styrkja, eru meðal stærstu góðgerðarsamtaka Ungverjalands. Samtökin styðja við starf til aðstoðar fórnarlömbum  heimilisofbeldis og ofbeldis gagnvart börnum. Þau vinna jafnframt fyrirbyggjandi starf til að  koma í veg fyrir ofbeldi, auka umræðu og hafa áhrif á viðhorf samfélagsins gagnvart þessum málaflokki.
segelyszervezet.hu

Ólafur Elíasson hefur tilnefnt Maternity Foundation, sem er dönsk þróunarstofnun sem hefur unnið ötult starf við að bjarga lífi kvenna og ungbarna sem eru í hættu vegna meðgöngu- og fæðingarfylgikvilla. Fulltrúar samtakanna tóku við styrknum við athöfnina í gær og héldu stutta ræðu um samtökin. Kjörorð þeirra er: ,,Engin kona ætti að deyja við það að gefa líf". Samtökin tóku þátt í  þróa appið "Safe Delivery" sem er nýstárlegt leiðbeiningarforrit  fyrir farsíma, sem kennir þeim sem veita fæðingarhjálp í Afríku og suðaustur-Asíu hvernig  bjarga megi lífi mæðra og ungbarna í fæðingu.
www.maternity.dk

Þeir sem hafa fengið LennonOno Grant For Peace friðarverðlaunin eru m.a.: Læknar án landamæra, Josh Fox, Michael Pollan, Alice Walker, Centre for Constitutional Rights, Pussy Riot, Art Production Fund og Rachel Corrie heitin.

Yoko sagði eftirfarandi um verðlaunahafana fjóra; ,,Ég er svo stolt að sjá svo verðuga verðlaunahafa og góðgerðarsamtök sem hljóta  styrkinn í ár. Þetta fólk og þessar stofnanir vinna linnulaust að því að bæta okkar viðkvæma heim með því að stuðla að friði, menntun, heilbrigði og veita  þeim aðstoð sem þurfa mest á því að halda. Þau  verðskulda  væntumþykju, athygli og þakklæti, því við viljum stuðla að friði og von í heiminum.“

Yoko Ono  kemur á hverju ári til landsins til að leiða athafnir til minningar um John Lennon á afmælisdegi hans 9. október. Síðdegis í gær tendraði Yoko Ono Friðarsúluna í Viðey. Ljós Friðarsúlunnar logar til 8. desember sem er dánardagur John Lennon.