Friðarsúlan tendruð í 10. sinn, frí sigling yfir sundið og frítt í Strætó

Mannlíf Mannréttindi

""

Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í 10. sinn með friðsælli athöfn á fæðingardegi John Lennons sunnudaginn 9. október klukkan 20.00 og verður kveikt á henni til 8. desember sem er dánardagur hans.

Boðið er upp á fríar ferjusiglingar og strætóferðir í kringum tendrunina. Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Söngfjelagið, Snorri Helgason og fleiri halda úti dagskrá sem hefst kl. 17.15 og stendur til 21.30.  Óskatré Yoko Ono verða staðsett í Viðeyjarnausti og Viðeyjarstofu þar sem gestir geta skilið eftir óskir sínar í tengslum við frið.

Siglingar og Strætó
Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Siglt verður frá Skarfabakka frá kl. 17.00 til 19.30. Fríar strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka. Fyrsti vagn fer frá Hlemmi kl.16.45 og síðan á tuttugu mínútna fresti til kl. 19.10. Fyrsta ferja eftir tendrun Friðarsúlunnar siglir frá Viðey kl. 21.00. Hægt að verður að taka strætó frá Skarfabakka að Hlemmi frá kl. 21.15 og þar til lokið verður að flytja gesti úr Viðey
Dagskrá
17.15-18.30: Dagskráin hefst með leiðsögn á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richards Serra í Viðey. Klukkan 17.00. hefst söguganga á vegum Borgarsögusafnsins um byggð og sögu í eyjunni. Leiðsagnirnar verða endurteknar á hálftíma fresti til kl.18.30. Farið verður frá Viðeyjarstofu.
17.30-19.30: Fjölskyldusmiðjur á vegum Listasafns Reykjavíkur í tjaldi á bak við Viðeyjarstofu.
18.30: Soffía Björg flytur tónlist í Viðeyjarnausti.
19.40: Dagskráin við Friðarsúluna hefst með kórsöng Söngfjelagsins undir stjórn Hilmars Arnar Agnarsonar. Borgarstjóri flytur ávarp skömmu síðar og kl. 20.00 verður ljósið á Friðarsúlunni tendrað. Kynnir kvöldsins er Eva María Jónsdóttir.

Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason flytur tónlist í Viðeyjarnausti eftir athöfnina. Veitingasala verður í Viðeyjarnausti og Viðeyjarstofu.
Yoko Ono býður öllum gestum að skrifa óskir um frið og hengja á óskatré sem staðsett eru í Viðeyjarstofu og Viðeyjarnausti. Allt frá því Friðarsúlan var fyrst tendruð fyrir tíu árum hafa borist yfir milljón óskir víðsvegar að úr heiminum. 

Fólk er hvatt til að klæða sig vel og í samræmi við veður. Nánari upplýsingar má finna á https://borgarsogusafn.is/videy/syningar/fridarsulan.

Friðarsúlan
Friðarsúlan er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007 til að heiðra minningu John Lennons. Friðarsúlan er tendruð árlega á fæðingardegi Lennons þann 9. október og lýsir til 8. desember sem er dánardagur hans. Listaverkið er tákn fyrir baráttu Ono og Lennons fyrir heimsfriði. Friðarsúlan, er í  formi óskabrunns en á hana eru grafin orðin „hugsa sér frið“ á 24 tungumálum en enska heitið er vísun í lagið „Imagine“ eftir John Lennon.