Friðarsúlan lýsir um hátíðirnar

Mannlíf Mannréttindi

Fólk við Friðarsúluna í Viðey

Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey í kvöld, miðvikudag 21. desember,  og munu ljósgeislar hennar lýsa upp kvöldhimininn fram til nýárs.

Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey í kvöld, miðvikudag 21. desember,  og munu ljósgeislar hennar lýsa upp kvöldhimininn fram til nýárs.

Friðarsúlan er tendruð ár hvert á afmælisdegi Lennons, 9. október og lýsir til 8. desember en þann dag dó Lennon árið 1980. Friðarsúlan er jafnframt tendruð frá vetrarsólstöðum til nýárs, í eina viku kringum vorjafndægur og á sérstökum hátíðardögum sem listamaðurinn Yoko Ono og Reykjavíkurborg koma sér saman um.

Ljós Friðarsúlunnar sést vel á höfuðborgarsvæðinu en einnig má sjá hana í beinni útsendingu.