Flóamarkaður á Bernhöftstorfu

Mannlíf

""
Umhverfis-og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir flóamarkaði á Bernhöftstorfunni laugardaginn 16. júlí frá klukkan 13 - 16. Spáð er sól og stuði og því tilvalið að tæma skápana og gleðjast saman á sumardegi. 
Við verðum með hljóðkerfi, sápukúlur og fleira skemmtilegt en þeir sem hafa áhuga á að selja þurfa að mæta með eigin búnað, borð, teppi, fataslá eða eitthvað slíkt. 
 
Það kostar ekkert að koma og selja en það er æskilegt að koma með góða skapið með sér samt!
Þeir sem hafa áhuga á að vera með í gleðinni geta tekið frá pláss með því að senda email á sumargotur@reykjavik.is
Hlökkum til að sjá ykkur!