Fjölbreyttir viðburðir á Safnanótt í Listasafni Reykjavíkur

Mannlíf Menning og listir

""

Safnanótt, föstudag 2. febrúar kl. 18–23.00
Ásmundarsafn – Kjarvalsstaðir – Hafnarhús

Safnanótt, föstudag 2. febrúar kl. 18–23.00
Ásmundarsafn – Kjarvalsstaðir – Hafnarhús

Dagskrá í Ásmundarsafni

Kl. 17-19.00 Opnun sýningar – Innrás I: Guðmundur Thoroddsen
Fyrsti hluti sýningaraðarinnar Innrás í Listasafni Reykjavíkur – Ásmundarsafni opnar á Safnanótt, föstudag 2. febrúar kl. 17.00.

Kl. 19.00 Leiðsögn um sýningarnar List fyrir fólkið og Innrás I(og garð ef veður leyfir).

Kl. 20.00 Leiðsögn listamanns (Guðmundur Thoroddsen).

Kl. 21.00 Leiðsögn Ólafar Kristínar Sigurðardóttur, sýningarstjóra um sýninguna List fyrir fólkið.
 

Dagskrá á Kjarvalsstöðum

Kl. 18-22.00 Skemmtilegir fjölskylduleikir tengdir sýningunum Myrkraverk og Líðandin – la durée.

Kl. 18-22.00 Fræðslufulltrúi Listasafns Reykjavíkur segir sýningargestum frá einstökum verkum á sýningum safnsins.

Kl. 18.30-20.00 Gestum boðið að skoða listaverkageymslur í kjallara safnsins – skráning á staðnum, takmarkaður aðgangur.

Kl. 18.30 Spennandi leiðsögn með vasaljósum um sýninguna Myrkraverk – fólk er hvatt til að koma með eigin vasaljós, einnig hægt að fá að láni.

Kl. 19.00 Leiðsögn Aldísar Arnardóttur, sýningarstjóra um sýninguna Líðandin – la durée.

Kl. 19.30 Spennandi leiðsögn með vasaljósum um sýninguna Myrkraverk – fólk er hvatt til að koma með eigin vasaljós, einnig hægt að fá að láni.

Kl. 20.00 Tónleikar með Tríói Reykjavíkur í Vestursal Kjarvalsstaða
Fagrir tónar kallast á við málverk Kjarvals á sýningunni Líðandin – la durée. Hin frábæra söngkona Hallveig Rúnarsdóttir flytur glæsilegar aríur og létta tónlist við undirleik Guðnýjar Guðmundsdóttur og Richards Simms. Einstök upplifun tónlistar og myndlistar í erli Safnanætur. 

Kl. 21.00 Leiðsögn um sýninguna Líðandin – la durée – sýningu á verkum Kjarvals, þar sem má sjá fjölda sjaldséðra verka.

Kl. 22.00 Svartmálmshljómsveitin NYIÞ leikur fyrir gesti. Hljómsveitin er skipuð fjórum persónum sem koma fram nafnlausar og óþekkjanlegar í svörtum klæðum.
 

Dagskrá í Hafnarhúsi

Kl. 18-22.00 Skemmtilegur fjölskylduleikur tengdur sýningunni Stór-Ísland.

Kl. 18-22.00 Fræðslufulltrúi Listasafns Reykjavíkur ræðir við sýningargesti um einstök verk í safninu.

Kl. 18.30 Leiðsögn Fee Quay, sýningarstjóra um sýninguna Stór-Ísland, þar sem sjö listamenn af erlendum uppruna eiga ólík verk.

Kl. 19.30 Leiðsögn Fee Quay, sýningarstjóra um sýninguna Heildin er alltaf minni en hlutar hennar. Sýningin er fyrsta einkasýning Páls Hauks Björnssonar í opinberu safni.

Kl. 20-22.00 Lifandi flutningur Páls Hauks Björnssonar, listamanns í D-sal á sýningunni Heildin er alltaf minni en hlutar hennar.

Kl. 20.30 Leiðsögn um sýningu á verkum Errós – Því meira, því fegurra í A-sal.

Kl. 21-22.30 Gestum boðið að skoða listaverkageymslur safnsins, skráning á staðnum, takmarkaður aðgangur.

Kl. 21.30 Leiðsögn Markúsar Þórs Andréssonar, sýningarstjóra um sýninguna Í hlutarins eðli –skissa að íslenskri samtímalistasögu [1.0]. Fjölbreytt verk samtímalistamanna úr safneign Listasafns Reykjavíkur.
 

ÓKEYPIS AÐGANGUR