Fjölbreytt dagskrá Borgarsögusafns í vetrarfríinu

Mannlíf Menning og listir

""

Borgarsögusafn verður með fjölbreytta dagskrá í vetrarfríi grunnskóla Reykjavíkur 19. -23. október og er aðgangur að henni ókeypis fyrir börn og fullorðna í þeirra fylgd.

ÁRBÆJARSAFN

Mánudaginn 23. október milli kl. 13-16 verður boðið upp á fjölskylduvæna dagskrá í Árbæjarsafni. Ævar vísindamaður les upp úr bók sinni Þitt eigið ævintýri í húsi sem nefnist LÆKJARGATA. Lesturinn hefst kl. 13:00 og eru allir velkomnir.
Í fræðsluhúsinu LÍKN er ljósmyndastúdíó á 1. hæð þar sem fólk getur klætt sig upp í búninga frá fyrri tíð og fengið starfsfólk til að smella af sér polaroid mynd við flottan bakgrunn milli kl. 13-16. Á annarri hæð hússins er ljósmyndasýning nemenda úr MH.
Í kjallara safnhússins sem nefnt er Landakot er að finna opna geymslu safnsins og nefnist hún KOFFORTIÐ. Þar verður boðið upp á skemmtilega myndaþraut. Í Koffortinu leynast margir forvitnilegir safngripir sem börn hafa gaman af og foreldrar, afar og ömmur þekkja frá því í „gamla daga.“
Leikfangasýningin Komdu að leika!  í safnhúsinu LANDAKOTI hefur fengið yfirhalningu og er nú enn betri fyrir vikið. Þar mega börn leika sér með leikföng sem börn hafa notað síðustu 100 árin.

SJÓMINJASAFNIÐ Í REYKJAVÍK

Fimmtudag og föstudag 19. og 20. október kl. 11 verður farinn fjölskylduleiðangur um króka og kima varðskipsins Óðins. Takmarka verður fjölda gesta skipinu því þar eru þröng rými og ekki með öllu hættulaus. Því komast aðeins 15-20 manns í hverja leiðsögn. Gestum er bent á að bóka sig í leiðsögn í miðasölu safnsins.
Foreldrar með stálpuð börn geta farið í hefðbundna leiðsögn um borð í Óðni kl. 13, 14 og 15 en hún fer yfirleitt fram á ensku.
Helgina 21.-22. október milli kl. 13-16 býðst fjölskyldum að smíða skip úr tæknilegó eftir fyrirmyndum eða með frjálsri aðferð. Til aðstoðar verður sérlegur kubbasérfræðingur í tæknilegó.

LANDNÁMSSÝNINGIN Í AÐALSTRÆTI
Landnámssýningin býður upp á vetrarfrísdagskrá dagana 19.-23. október frá kl. 10-18.  Þar verður hægt að púsla og leysa þrautir  í notalegu umhverfi sýningarinnar. Inn af sýningunni er kennslurými með leikföngum og víkingabúningum. Tilvalið tækifæri til að smella af flottri mynd!

LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Dagana 19.-23. október munu börn og fullorðnir í þeirra fylgd fá ókeypis aðgang að Ljósmyndasafninu.  Þar stendur yfir sýningin „Mál 214“ eftir Jack Latham sem fjallar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið, eitt stærsta og umdeildasta sakamál í sögu Íslands og sýningin Hraun með ljósmyndum eftir Yogan Muller.

Vetrarfrísdagskrá Borgarsögusafns í stuttu máli:

Ókeypis aðangur fyrir börn og fullorðna í þeirra fylgd dagana 19.-22. október 2017.

Sjóminjasafnið í Reykjavík
Fimmtud. 19. okt kl. 11: Fjölskylduleiðangur um varðskipið Óðin. Takmarkast við 15-20 manns.
Föstud. 20. okt kl. 11: Fjölskylduleiðangur um varðskipið Óðin. Takmarkast við 15-20 manns.
Laugard. 21. okt kl. 13-16: Tæknilegósmiðja - skipasmíði
Sunnud. 22. okt kl. 13-16: Tæknilegósmiðja – skipasmíði

Árbæjarsafn
Mánud. 23. okt kl. 13: Sögustund með Ævari vísindamanni í Lækjargötu.
Mánud.  23. okt  kl. 13-16: Búningamyndataka í Líkn
Mánud.  23. okt  kl. 13-16: Ratleikur um Koffortið þar sem leynast spennandi safngripir.

Landnámssýningin
Fimmtud. 19. okt – mánudags 23. okt kl. 9-18: Leikir, spil og þrautir ásamt víkingabúningum sem allir mega máta og smella af mynd.
Ljósmyndasafnið Reykjavíkur
Fimmtud. 19. okt – mánudags 23. okt: Sýningarnar Mál 214 og Hraun . Ókeypis aðgangur fyrir börn og fullorðna í þeirra fylgd.