Fimm og hálfur kílómetri af hjólreiðastígum bætast við

Framkvæmdir Samgöngur

""

Enn bætist við hjólreiðastígakerfið í borginni því í sumar verða um fimm og hálfur kílómetri af nýjum, sérstökum hjólreiðastígum lagðir víða um borgina.

Reykjavíkurborg mun leggja um fimm og hálfan kílómetra af nýjum hjólreiðastígum í sumar. Er það í samræmi við markmið hjólreiðaáætlunar borgarinnar.

Hluti stíganna sem lagður verður er samstarfsverkefni borgarinnar og veitufyrirtækja. Stígarnir eru aðgreindir frá umferð gangandi og akandi vegfarenda þar sem mögulegt er til að bæta umferðaröryggi.  Áætlaður kostnaður við lagningu stíganna er 575 milljónir króna með hönnun og skiltum en þar af er kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar 450 mkr. Hjólreiðastígar borgarinnar eru ruddir á veturnar  enda teljast þeir til mikilvægra samgönguæða líkt og götur og helstu gönguleiðir í borginni.

Tvö stærstu verkefnin eru lagning 1,6 km hjólreiðastígs í Elliðaárdal frá Bústaðavegi að Höfðabakka og lagning eins kílómetra stígs meðfram Suðurlandsbraut frá Engjavegi að Langholtsvegi. 

Framkvæmdatími verður frá því í maí og fram í október en að framkvæmdum loknum verða sérstakir hjólreiðastígar í Reykjavík orðnir um 27 kílómetrar að lengd.

Stígar sem verða lagðir í sumar:

Birkimelur (Hringbraut að Hagatorgi) -  kostnaður 7 milljónir króna en heildarframkvæmd við götuna 46 mkr.                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
Bústaðavegur (Háaleitisbraut – Eyrarland) - kostnaður 25 mkr.
Elliðaárdalur - (Bústaðavegur að Höfðabakka) - kostnaður 120 mkr.
Geirsgata frá Pósthússtræti að Kalkofnsvegir - kostnaður 6 mkr.
Kalkofnsvegur (Geirsgata að Faxagötu) - kostnaður 20 mkr.
Kringlumýrarbraut (Suðurhlíðar – Kópavogur) - kostnaður 78 mkr.
Miklabraut (Rauðarárstígur – Langahlíð) kostnaður 20 mkr.
Miklabraut við Rauðagerði - kostnaður 36 mkr.
Suðurlandsbraut (Engjavegur – Langholtsvegur) kostnaður 128 mkr.
Sæbraut (Kringlumýrarbraut- Laugarnes) - kostnaður 44 mkr.

Hjólaborgin Reykjavík