Félag eldri borgara annist félagsstarf í Árskógum

Velferð Mannlíf

""
Félag eldri borgara,  FEB,  og Reykjavíkurborg hafa gert samning um að félagið annist félagsstarf í Árskógum 4. Með samningnum er tryggt að FEB hafi aðstöðu undir félagsstarfið sem og aðra umsýslu félagsins.
Félagsstarfið er opið öllum sem áhuga hafa auk þess sem hægt er að fá aðgengi að opnum rýmum og húsnæðið er lánað til ýmis konar námskeiða,  hópa- og klúbbastarfs.
 
Það ríkti bjartsýni með samstarfið og samningamenn voru á því að hér væri stigið jákvætt skref bæði fyrir FEB og félagsstarfið í Árskógum. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður FEB, taldi að samstarfið yrði bæði jákvætt og skemmtilegt.  Verið er að byggja fleiri blokkir fyrir eldri borgara í hverfinu og þegar litið er á legu borgarinnar eru Árskógar nokkuð miðsvæðis.
 
Að undirritun lokinni söng Helga Möller fyrir gesti og boðið var upp á kaffi og með því.  Árskógar er ein af 17 félagsmiðstöðvum velferðarsviðs  borgarinnar, þar sem í boði er fjölbreytt félagsstarf.